Kosningu um orð ársins 2022 hjá Orðabókinni er nú lokið. Sigurvegarinn í kosningunni er Hleðslukvíði.
Hleðslukvíði er tilfinning sem eigendur rafmagnsbíla og rafmagnshjóla kannast við þegar þau óttast að komast ekki á leiðarenda með orkunni sem er eftir á batteríinu.
Við könnumst líka við þessa tilfinningu þegar við höfum áhyggjur af því að rafhlaðan í símanum tæmist við óheppilegar aðstæður, t.d. úti á djamminu eða á ferðalögum þar sem engin rafmagnsinnstunga er nærri.
Þakka öllum sem tóku þátt í kosningunni. Verið dugleg að búa til ný orð árið 2023.
Og ég lofa að skrifa um eitthvað annað en orð ársins á þennan vef á þessu ári, og hafa hann virkari en á því síðasta. Það verður ekki erfitt.
Orð ársins 2022 hjá nokkrum öðrum:
- Árnastofnun: Innrás
- Fréttablaðið: Aflétting
- Oxford-orðabókin: Púkahamur (Goblin mode)
- RÚV: Þriðja vaktin
- Merriam-Webster: Gaslýsing
Orð ársins hjá orðabókinni frá upphafi:
Til upprifjunar er hér listi yfir orð ársins hjá Orðabókinni frá upphafi:
- 2017: Djammviskubit
- 2018: Áhrifavaldur
- 2019: Loftslagskvíði
- 2020: Fordæmalaus
- 2021: Óróapúls